15. ágúst 2014

Uglubollar

Ég gerði mér ferð á internetið til að finna nokkra fína kaffibolla til að sýna ykkur. Þeir passa vel inn í ugluæðið sem virðist allsráðandi nú til dags.

Ugluungi.


Einn gamaldags.

Þessi er líka svolítið gamaldags.
Þessi ugla er greinilega ekki búin að fá morgunkaffið sitt.
Ugluamma.
Mér finnst sumir aðeins of frumlegir.



Þessi er handmálaður.
Ugla með yfirvaraskegg og hatt.

Þetta var víst gert með því að sleppa tveimur snakkhringjum (skilst mér) ofan í kaffið (sjá nánar hér)

Hver er þinn uppáhalds? Ég held að minn sé þessi með yfirvaraskegginu og þessi sem er ekki búin að fá morgunkaffið sitt ...og þessi með ljósmynd af þremur uglum.

13. ágúst 2014

Skírn og afmæli

13. júlí var mikill merkisdagur. Þá lá leið okkar til höfuðborgarinnar, nánar tiltekið Háteigskirkju þar sem bróðursonur minn var skírður og bróðurdóttir mín fagnaði tveggja ára afmæli sínu.

Strákurinn fékk nafnið Jóhann Orri í höfuðið á Jóhanni móðurbróður okkar og Orra bróður okkar.
Ragnheiður Kristín bauð upp á þessa gómsætu afmælisköku.

Ragga var lengi búin að tala um það að þegar hún yrði tveggja ára ætlaði hún að borða músaköku. Til hægri má svo sjá okkur stelpurnar í þjóðbúningum. Frá vinstri: mamma, ég, Ragnheiður Helga (hin amma Röggu) og Ragga. 

Þeir sem áttu þjóðbúning voru í honum í skírninni. Á myndnini hér fyrir ofan eru mamma og Ragnheiður Helga í 19. aldar upphlut og ég er í 20. aldar upphlut. Ragnheiður Kristín er í barnabúningi. Mamma saumaði búninginn á sig og barnabúninginn og pabbi baldýraði og smíðaði silfrið á þá. Hér fyrir neðan er svo mynd af Jóhanni Orra í ungbarnabúningi sem mamma prjónaði eftir sínu höfði.

 Hér bíða pabbi og Karl-Kristian prúðir eftir því að Ragnheðiur Kristín bjóði gestunum að gjöra svo vel.

Amma Mæja með langömmubarnið sitt. 

11. ágúst 2014

Sumarfrí á Íslandi

Þá er ég komin aftur til Vestby. Við Karl-Kristian fengum íbúðina sem ég talaði um hér og flytjum inn síðustu helgina í ágúst. Ég get varla beðið ég hlakka svo til. Karl-Kristian byrjaði að vinna fyrir viku síðan og ég byrja í næstu viku. Ég hlakka líka rosalega til þess að byrja að vinna.

Ég var að skoða myndir frá Íslandsförinni og fannst tilvalið að skella í eina færslu með myndum úr ferðinni.

Mamma var dugleg að sækja Ragnheði Kristínu og fá hana í láni. Röggu fannst ekkert leiðinlegt að hafa mig og Karl-Kristian þarna líka og vildi ólm fá okkur með sér í sólstofuna og sitja þar (í svona 3 mín, þá var hún farin eitthvert annað).


Karl-Kristian og Ragga urðu perluvinir.

 Okkur Röggu kom líka vel saman

Eldrún, vinkona Röggu, kom líka í heimsókn og fékk að fara með í göngutúr (sem er fastur liður hjá mömmu og Röggu). Ragga vildi helst vera með þessa beljuhúfu en mamma náði að sannfæra hana um að vera með lambhúshettu í staðinn. Til hægri má líka sjá dúkkuna mína, Gunnar.

Það var allt morandi í hrossaflugum við húsið hjá mömmu og pabba. Eitt kvöldið voru fjórar hrossaflugur að sveima um herbergið þegar ég var að fara að sofa. Þegar ég vaknaði blasti þessi sýn við mér.
 Höfuðið á mér hafði hvílt neðst á hægra horni koddans.
Ég, Eva, Eyrún og Ýr gerðum okkur glaðan dag og fórum á Saffran í hádeginu. Emma Þórunn og Jónína Hugborg, dætur Evu og Eyrúnar fengu líka að slást með í för og horfa á okkur borða. Eftir máltíðina ákvað Eva svo að bjóða okkur heim til sín í vidjó og snarl. Þið hefðuð átt að sjá okkur allar 6 liggjandi í svefnsófanum hennar Evu, með sæng, að horfa á dansmynd. Myndin var ekki góð en það kom ekki að sök þegar allt annað var svona frábært.

Eva klikkar ekki á veitingunum. Hún útbjó guacamole, ostadipp, kaffi og
hráfæðisgóðgæti. Þetta var allt mjög gott hjá henni og fallega borið fram.

Veitingarnar ofan frá. Neðst á myndinni má svo sjá sokkinn hennar Ýrar, sem Ævar bróðir hennar gaf henni.

Ég var dugleg að taka upp prjónana og hér fyrir neðan er mynd sem ég tók þegar Sonja bauð mér í kaffi. Við sátum allt síðdegið úti á palli í sólinni og prjónuðum. Ég hefði auðvitað átt að taka mynd af Sonju líka, en þessi mynd er af lopavettlingunum sem ég var að prjóna.

Uppskriftin er úr Vettlingum og fleiru eftir mömmu (Kristínu Harðardóttur). 
Svona leit skrifborðið mitt út. Það mætti halda að einhver prjónabúð hafi ælt yfir það.
Síðasta daginn minn á landinu kíkti ég til ömmu Mæju. Hún bauð mér upp á kaffi og kökur og sýndi mér alls kyns prjónadót: vettlinga og sokka sem hún er búin að prjóna, ásamt uppskriftunum og garni sem hún notar. Hún spáði líka fyrir mér í bolla.

Kaffi og með'í.

5. ágúst 2014

Landkönnuðirnir - fyrsti hluti - Reykjanes

Stuttu eftir að við Karl-Kristian komum til landsins fórum við með mömmu og pabba í dagsferðalag um Reykjanes. Ég tók fullt af myndum og hér fyrir neðan sjáið þið nokkrar þeirra. Við byrjuðum á því að kíkja á flekaskilin á milli Evrasíuflekans og Ameríkuflekans.

Mamma kíkti aðeins ofan í sprunguna, en við hin létum okkur nægja að setja einn fót yfir sitt hvorn flekann.

Við kíktum líka á Reykjanesvita og sáum Eldey (ekki á myndunum).




Næst var komið við hjá Gunnuhver.



Við tókum dágóðan göngutúr að gömlu verbúðunum á Selatanga. Þetta var mjög skemmtileg leið um hraunið og fjörunar og gaman að sjá gömlu hleðslurnar.


Það var tilvalið að borða nestið á þessum trjádrumbum.









Við komum líka við í Slevoginum þar sem móðurafi minn ólst upp og enduðum svo ferðina í Hveragerði þar sem foreldrar mínir áttu erindi.

Inni í Selvogskirkju.

Ég og Karl-Kristian hittum vinalega hesta í Hveragerði.