Í sumar greip ég oft í prjónana og hér koma myndir af afrakstrinum.
Svona leit skrifborðið mitt út þegar ég var á Íslandi. Prjónar, garn, prjónabækur og prjónastykki út um allt. |
Ég prjónaði þessa lopavettlinga til að gefa mastersverkefnisleiðbeinandanum mínum. Uppskriftin er úr Vettlingum og fleiru eftir Kristínu Harðardóttur. Ég notaði þrefaldan plötulopa í stað tvöfalds til að fá karlmannsstærð.
|
Lopavettlingar úr þreföldum plötulopa. |
Uglugrifflur.
|
Ég gerði aðra tilraun til að gera sokka handa Emmu Þórunni. Ég var búin að prjóna fyrri sokkinn og byrjaði á þeim seinni þegar við vorum í sumarbústað. Mér fannst hann vera svolítið stór hjá mér en ég var ekki með fyrri sokkinn með mér til að bera þá saman. Þegar ég kom heim og bar þá saman reyndist ég hafa farið smá línuvillt í uppskriftinni og prjónað seinni okkinn á 3 ára í stað 0,5 ára. Þá gafst ég upp og Emma Þórunn hefur enga sokka fengið.
Mér finnst magnað að þú getir bara búið til allskonar svona fínerí. Vildi að ég hefði nennuna í svona :) Annars finnst mér líka mjög athyglisvert að þú þurfir grifflur í vinnunni, er ekki kynding þarna?
SvaraEyðaJú, en þessi bölvaða loftræsting er aldrei til friðs. Það er oft aðeins of kalt (strákunum sem ég vinn með finnst samt bara vera notalegt) og þegar sólin skín, verður oft allt of heitt. Það er bara eitt ráð við þessu - layers.
Eyða