Fyndið?
16. maí 2014
Mjólkurskegg
Ég keypti mér Melkebart [ísl: mjólkurskegg] um daginn til að nota sem lærdómssnarl og ég var svo ljónheppin að pakkningarnar voru ekki einungis til þess gerðar að halda utan um súkkulaðið. Ó sei sei nei! Það var líka yfirvaraskegg á pakkningunni sem hægt var að klippa út þegar góðgætið var komið á sinn stað. Ég brá því á leik og tók nokkrar sjálfsmyndir.
Labels:
Grín og glens
Location:
Klostergata, 7030 Trondheim, Norway
9. maí 2014
Mastersrugl
Hér eru nokkrar myndir sem ég hef tekið á meðan ég er að vinna að mastersverkefninu. Ég hlakka rosalega til að klára þetta.
Hér er ég að syngja og nota hárið á mér sem hljóðnema. "Let it go. Let it go!"
Aðeins að lífga upp á lærdómskaffið.
Hér er ég búin að setja á mig derhúfu til forðast að dreifa huganum.
Það er mikilvægt að vera með smá lærdómssnarl.
Epli eru holl og góð.
Hér er ég búin að borða eitthvað grænt.
Inni á milli alls átsins læri ég stundum.
Páskaunginn hjálpar mér að þrífa eldhúsið.
Ég er alltaf að pissa og fylla á vatnsflöskuna mína. Orsök og afleiðing.
BAAAAÆÆKUR!
Fæ mér kríu í nýmóðins sófa. Hönnunarrúnkið á bókasafninu er alveg efni í nýja færslu.
Ef ég man að taka myndir leyfi ég ykkur kannski að sjá fleiri nýmóðins húsgögn og önnur ferlíki.
1. maí 2014
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)