Á leið okkar heim frá Snæfellsnesi í sumar, komum við við í sveitinni hjá Jóhanni frænda og Brynju konunni hans. Þau stunda búskap, veitinga- og hótelrekstur á bænum Hraunsnefi, í Borgarfirði rétt hjá Bifröst.
|
Hraunsnef sveitahótel |
|
Ég fékk mér Hraunsnefsborgara ef mig misinnir ekki. |
Dýrin á bænum. Landnámshænur og lamb* með skitu.
|
Í torfæruferð með Jóhanni bónda. |
Við Karl-Kristian erum miklir dýravinir.
*Til gamans má geta að ég borðaði þetta lamb í matarboði hjá Jóhanni og Brynju um jólin. Það var mjög ljúffengt.